Þorkell Sigurlaugsson félagi okkar var með afar áhugaverðan fyrirlestur sem hann kallaði Reykjavík: höfuðborg, hafnarborg og hjáskólaborg. RAkti hann í máli og myndum þróun uppbyggingar í borginni.
Dr. Ragna Kemp Haraldsdóttir lektor við HÍ ræðir um kennslu og rannsóknir: Upplýsinga - og skjalastjórn og rafræn samskipti hjá skipulagsheildum. Ragna fór yfir mikilvægi skjalastjórnunar, öll værum við að meðhöndla upplýsingar á einn eða annan hátt, upplýsingar flæða alls staðar og skiptir alla mál...
Ríkharður Ríkharðsson var fyrirlesari dagsins og ræddi um "Ný og græn orkutækifæri".
Haldið var upp á Rótarýdaginn 23. febrúar 2021 á netinu undir stjórn umdæmisstjóra Soffíu Gísladóttur.Gestir í "setti" voru Guðríður Helgadóttir verðandi forseti Rótarýklúbbi í Borgum með 3 mín erindi; Bala Kamallakharan í Rótarý Rvk. International sem var með fréttaskot um Pudiyador verkefnið i Che...
Zoom fundur. Rótarýfélagi okkar Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari kynnir starf sitt fyrir okkur félögum sínum.
Hrólfur Jónsson framkvæmdastjóri Vísindagarða Háskóla Íslands mun koma á fund til okkar mánudaginn 19. apríl og segja okkur frá uppbyggingunni sem er að eiga sér stað á svæði Vísindagarðanna. Hrólfur þekkir vel til þróunar- og uppbyggingavinnu Reykjavíkurborgar enda starfaði hann áður sem skrifstof...
Óttar er Reykvíkingur í húð og hár. Stúdent frá MR 1968. Embættispróf í læknisfræði 1975. Doktorspróf frá Gautaborgarháskóla 1984. Starfað hjá sáá og Landspítala og krýsuvíkursamtökunum. Lagði stund á sögu læknisfræðinnarc í Berlin 1998-2000. Höfundur 12 bóka sem fjalla um margvísleg efni s.s. kynlí...
Hulda Þórisdóttir er stjórnmálasálfræðingur og starfar sem dósent við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Hulda lauk doktorsprófi í félagslegri sálfræði frá New York University árið 2007 og hefur síðan kennt og starfað við Princeton háskóla, Háskóla Íslands og nú síðast kenndi hún í tvö ár við New...
Halla Hrund er með BA próf í stjórnmálafræði og framhaldsnám á sviði alþjóðasamvinnu, opinberrar stjórnsýslu, umhverfismála og hagfræði frá hàskólunum Tufts og Harvard í Bandaríkjunum og einnig að hluta við LSE i Bretlandi. Halla Hrund er meðstofnandi og stýrir miðstöð Norðurslóða við Harvard ...
Nánari kynning á fundinum sjálfum.
Ásdís Helga Bjarnadóttir umdæmisstjóri mun fjalla um starf umdæmisins og greina frá áherslumálum heimsforseta. Pétur Magnússon fráfarandi forseti mun jafnframt fara yfir liðið starfsár og afhenda styrk til góðgerðarmála.
Fyrirlesari verður Brynja Dögg Friðriksdóttir sem starfaði á vegum Íslensku friðargæslunnar hjá NATO í landinu 2018-2019. Erindi Brynju fjallar um sögu, menningu og stjórnmál í Afganistan og stöðuna sem er upp komin í landinu eftir að Bandaríkin og NATO fóru með herstyrk nýverið. Fundurinn er í um...
Hulda Þórisdóttir dósent mun flytja erindið: Sitthvað um sálfræði samsæriskenninga.Hulda er stjórnmálasálfræðingur og starfar sem dósent við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Hulda lauk doktorsprófi í félagslegri sálfræði frá New York University árið 2007. Hún hefur kennt og starfað við Princeto...
Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Samáls ræðir um stöðu og horfur í áliðnaði og tækifæri í loftslagsmálum. Hann tæpir einnig á öðrum verkefnum, svo sem bókaútgáfu, þáttagerð og ljóðum. Pétur hefur fengist við ritstjórn og blaðamennsku, kennslu við HÍ, almannatengls og ráðgjöf af ýmsum toga. Hann er með...
Fyrirlesari verður Sigmundur Ernir Rúnarsson blaðamaður, ljóðskáld og rithöfundur. Hann er aðalritstjóri Útgáfufélagsins Torgs ehf sem rekur Fréttablaðið, DV, Markaðinn og Hringbraut. Hann á að baki 40 ára feril í fjölmiðlum og var alþingismaður Norðausturkjördæmis á árunum 2009 og 2013. Fundurinn ...
Þessa viku verður ekki fundur í Nauthól á mánudag heldur förum við í heimsókn til Ríkissáttasemjara, Borgartúni 21 á þriðjudag kl 17. Þeir sem ekki eru búnir að skrá sig vinsamlega svarið pósti sem sendur var af ritara þess efnis.
Páll Erland framkvæmdastjóri Samorku mun mæta á fundinn og fjalla um orkumál og græna framtíð. Páll á að baki 20 ára fjölbreyttan feril í orku- og veitugeiranum. Meðal annars var hann fyrsti framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar og þar áður framkvæmdastjóri veitureksturs hjá Orkuveitu Reykjavíkur.
Bjarni Reynarsson mun flytja erindi sem nefnist Borgarlínan og skipulagsmálin. Bjarni lauk Ph.D. í landfræði og borgarskipulagi frá Illinois háskólanum í Bandaríkjunum árið 1980. Hann vann á Borgarskipulagi í rúma tvo áratugi til ársins 2003 við gerð aðalskipulags og rannsóknir. Bjarni stofnaði f...
Fyrirlesari verður Birkir Hólm Guðnason sem hefur verið forstjóri Samskipa frá árinu 2018. Hann starfaði áður í 18 ár hjá Icelandair, þar af sem forstjóri frá árinu 2008. Birkir er með meistaragráðu í viðskiptum frá Álaborgarháskóla í Danmörku. Fundurinn er í umsjón Ungmennanefndar sem í sitja Arne...
Fyrirlesari verður Eirikur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst. Eiríkur er höfundur níu fræðibóka og fjölda tímaritsgreina. Hann skrifar aðallega um þjóðernishyggju, popúlisma, samsæriskenningar, Evrópusamruna, íslensk stjórnmál og um þátttökulýðræði. Hann er einnig höfun...
Aníta Hilmarsdóttir, Rósa Kristinsdóttir og Kristín Hildur Ragnarsdóttir munu flytja erindi sem nefnist Ræðum um peninga. Þær standa að baki samstarfsverkefninu Fortuna Invest og halda úti samnefndum miðli á Instagram. Markmið miðilsins er að auka fjölbreytta þátttöku á fjármálamarkaði með því að s...
Stefán S. Stefánsson félagi okkar mun leika nokkur ljúflingslög í anda hátíðarinnar ásamt félögum sínum. Eva Björg Ægisdóttir, rithöfundur, verður einnig gestur á fundinum. Hún vann samkeppni um Svartfuglinn árið 2018 fyrir handritið að fyrstu bók sinni – „Marrið í stiganum“ - og á þessu ári hlau...
Magnús Harðarson forstjóri Nasdaq Iceland og félagi okkar ætlar að flytja erindi um fjármálamarkaðina í upphafi árs, áhrif heimsfaraldurs og stöðuna almennt. Magnús hefur Ph.D. gráðu í hagfræði frá Yale University. Hann hefur starfað hjá Nasdaq Iceland (áður Kauphöll Íslands) frá árinu 2002 fyrst...
Því miður þá forfallast gestur okkar Andrea Gunnarsdóttir á morgun en í stað hennar mun Sævar Kristinsson félagi okkar hlaupa í skarðið og flytja erindi um stöðu ferðaþjónustunnar. Hann mun m.a. ræða stöðuna út frá könnun sem gerð var meðal ferðaþjónustufyrirtækja. Sævar starfar sem verkefnastjóri ...
Guðrún Inga Sívertsen, skólastjóri Verzlunarskóla Íslands mun flytja erindi fyrir okkur. Hún er fyrsta konan til að gegna þessu embætti í rúmlega 110 ára sögu skólans. Erindi hennar mun fjalla um aðgerðir skólans í ljósi Covid ásamt því að segja okkur frá norrænu samstarfi skólans á sviði mennt...
Erindið flytur Friðrik Jónsson. Hann er formaður Bandalags háskólamanna, og tók við því hlutverki í lok maí 2021. Áður starfaði hann innan utanríkisþjónustunnar í rúm 25 ár, síðast sem annars vegar forstöðumaður GRÓ, þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu og hins vegar sem fulltrúi Íslands í embættisma...
Erindið flytur Stella Samúelsdóttir. Hún hefur verið starfandi framkvæmdastýra UN Women á Íslandi í tæp fimm ár, eða frá árinu 2017. Ferill hennar síðastliðin átján ár hefur verið á vettvangi alþjóða- og þróunarmála með áherslu á jafnréttismál. Í fyrri störfum sínum starfaði hún sem ráðgjafi í þróun...
Við bjóðum gesti og Rótarýfélaga velkomna á kynningarfund á Rótarýdaginn, miðvikudaginn 23. febrúar nk. kl. 17:00 í Háskólanum í Reykjavík, stofu V101. Kynning á Rótarýhreyfingunni, Rotaract og starfi Rótarýklúbbsins Reykjavík Miðborg. Hrefna Sigríður Briem, forseti klúbbsins flytur kynningu. ...
Ottó Guðjónsson er fæddur í Bandaríkjunum 1957 en flutti heim til Íslands með foreldrum sínum áður en skólaganga hófst. Hann fór í Menntaskólann við Sund og þaðan beint í læknisfræði í Háskóla Íslands. Þaðan fór Ottó í sérnám í almennum skurðlækningum í New York og starfaði þar um árabil en flutti h...
Forseti mun kynna niðurstöður viðhorfskönnunar sem gerð var meðal félaga klúbbsins um starfsemina og í kjölfarið verða umræður um aðgerðir.
Björk er leikkona, leikstjóri og rithöfundur. Hún er einn af stofnendum Gaflaraleikhússins. Þar hefur hún síðustu 13 árin stýrt fjölda nýrra íslenskra leikverka. Fundurinn er í umsjón klúbbnefndar sem í sitja Svanhildur Blöndal formaður, Guðrún Ragnarsdóttir, Stefán Stefánsson og Pétur Magnússon.
Ari er forstjóri og einn af eigendum 1912 ehf. Hann hefur stýrt félaginu frá 2008 en áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri Nathan & Olsen. Ari er formaður Viðskiptaráðs Íslands ásamt því að sitja í stjórn Amerísk-íslenska viðskiptaráðsins. Fundurinn er í umsjón klúbbnefndar sem í sitja Svan...
Sigurlína er einn reyndasti stjórnandi í heimi á sviði tölvuleikja. Hún ætlar að tala um reynslu sína af tölvuleikjum og tölvuleikjaframleiðslu í fjórum löndum. Ræða um stöðu tölvuleikja í dag og hvernig hún sér þá þróast í framtíðinni í samhengi við aðra miðla og fjarskiptatækni. Sigurlí...
Unnur er forstjóri Vinnumálastofnunar og félagi í Rótarýklúbbi Seltjarnarness. Hún segir okkur frá þeim áskorunum sem stofnunin tókst á við í Covid, hvaða áhrif Covid hefur haft á vinnumarkaðinn, á starfsemi VMST og málaflokkana sem stofnunin sinnir. Unnur fjallar um hvað má læra af viðbrögðum við ...
Magnús er forstjóri Kauphallarinnar og félagi okkar í Rótarý Reykjavík Miðborg. Hann flytur erindi um mikilvægi fjölbreytileika og kynjajafnvægis hjá fyrirtækjum með góða stjórnarhætti. Kynnir: Gunnhildur Arnardóttir. Fundurinn er í umsjón ritnefndar sem í sitja Gunnhildur Arnardóttir formaður, ...
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir frá stöðu og tækifærum í ferðaþjónustu á Íslandi. Fundurinn er í umsjón Starfsgreinanefndar.
Haukur Skúlason er einn af stofnendum INDÓ, nýjasta sparisjóðs landsins og mun hann kynna starfsemi hans fyrir okkur.
Þá er komið að fyrstu fyrirtækjaheimsókn þessa starfsárs hjá okkur, en þær hafa ávallt verið vinsælar. Á fundinum mun Þorsteinn Guðjónsson forstjóri Deloitte fara yfir þær breytingar sem hafa orðið á félaginu frá því að við heimsóttum það síðast (2019), en miklar umbreytingar eru að eiga sér stað s...
Jakobsvegurinn er þekktasta pílagrímaleið í Evrópu. Eiríksína Eyja Ásgrímsdóttir bókmenntafræðingur segir frá tilurð og sögu Jakobsvegar á Spáni, Frakklandi og í Portúgal. Hún gerir grein fyrir helstu leiðum og setur í sögu- og menningarlegt samhengi. Einnig mun hún lýsa persónulegri reynslu af þv...
Jón Þ. Þór prófessor emiritus við Háskólann á Akureyri er í hópi afkastamestu sagnfræðinga á Íslandi. Hann mun fjalla um sögu Bretaveldis sem var víðfeðmasta heimsveli sögunnar, frá valdadögum Elísabetar I á 16. öld fram á þá 20. Bók hans „Bretaveldi – Ris og hnig víðfeðmasta heimsveldis sögunnar“...
Björn hefur fjallað opinberlega um öryggismál Íslands og Norðurlanda og önnur utanríkismál og stjórnmál. Fundurinn er í umsjón Ungmennanefndar. Pétur Blöndal kynnir fyrirlesarann.
Páll Jakob Líndal er með doktorspróf í umhverfissálfræði frá Háskólanum í Sydney. Hann er sérfræðingur í mati á sálfræðilegum áhrifum umhverfis á heilsu og vellíðan, hvort um er að ræða náttúru eða byggt umhverfi. Hann er annar eiganda fyrirtækisins ENVALYS sem leggur áherslu á hagnýtingu tölvutækn...
Ari Trausti Guðmundsson, Antartíka: Síðasta meginlandið og Árni Árnason, höfundur bókarinnar Ingólfur Arnarson, arfleifð hans og sagan í nýju ljósi. Ari Trausti Guðmundsson (1948) nam við Háskóla Íslands og í Osló, með áherslu á jarðvísindi og vann m.a. við kennslu, leiðsögn og ferðaþjónustu til 19...
Hvar býr valdið? Hjá þjóðinni, Alþingi, alþjóðastofnunum? Er lýðræðið að veikjast, réttarríkið að hopa og einstaklingsfrelsið að skerðast? Tökum við næga ábyrgð á frelsi okkar? Fundurinn er í umsjón Alþjóðanefndar. Gestur Ólafsson kynnir fyrirlesarann.
Helga hefur verið leiðandi í nýsköpunarheiminum á Íslandi um þó nokkurt skeið. Hún lauk BA gráðu í hagfræði og enskum bókmenntum við Harvard University og MBA gráðu við London Business School. Crowberry Capital hefur starfað í rúmlega þrjú ár. Á þessum tíma hefur sjóðurinn fjárfest í 12 fyrirtækj...