Hulda Þórisdóttir er stjórnmálasálfræðingur og starfar sem dósent við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Hulda lauk doktorsprófi í félagslegri sálfræði frá New York University árið 2007 og hefur síðan kennt og starfað við Princeton háskóla, Háskóla Íslands og nú síðast kenndi hún í tvö ár við New York University í Abu Dhabi. Rannsóknir Huldu hafa beinst að sálfræði hugmyndafræði, t.d. hlutverki ótta og kvíða í mótun stjórnmálaskoðanna. Því tengdu hefur hún einnig rannsakað viðhorf á jaðri hefðbundinnar hugmyndafræði svo sem popúlisma og samsæriskenningar. Hulda er einn meðlima í teyminu sem stendur að baki Íslensku kosningarannsókninni. Hulda er gift Óskari Þór Axelssyni kvikmyndaleikstjóra og búa þau í Laugardalnum ásamt tveimur börnum þeirra á grunnskólaaldri.