Jólafundur mánudag 5. des. kl.12-14

mánudagur, 5. desember 2022 12:00-14:00, Nauthóll, Nauthólsvegi 106, 101 Reykjavík, Ísland
Fyrirlesari(ar):

Ari Trausti Guðmundsson

Árni Árnason

Ari Trausti Guðmundsson, Antartíka: Síðasta meginlandið og Árni Árnason, höfundur bókarinnar Ingólfur Arnarson, arfleifð hans og sagan í nýju ljósi.

Ari Trausti Guðmundsson (1948) nam við Háskóla Íslands og í Osló, með áherslu á jarðvísindi og vann m.a. við kennslu, leiðsögn og ferðaþjónustu til 1987. Eftir það var hann sjálfstætt starfandi til 2016 og t.d. sinnt ýmis konar faglegri ráðgjöf, fyrirlestrum, ferðaþjónustu, kynningu á vísindum og náttúru, ritstörfum og dagskrárgerð fyrir sjónvarp og útvarp. Hann hefur stundað fjallamennsku, útivist og ferðalög, heima og heiman. Ari Trausti á að baki tugi bóka um landið, náttúruna og umhverfismál og einnig á um tug ljóðabóka, stuttsögusafn og nokkrar skáldsögur. Meðal verkefna hans eru margar sýningar og söfn um náttúruna og orkumál. Ari Trausti var þingmaður fyrir Vinstri hreyfinguna – Grænt framboð frá 2016 til og með 2021.

Árni Árnason, framkvæmdastjóri og höfundur bókarinnar Ingólfur Arnarson. Arfleifð hans og sagan í nýju ljósi. Í þessari bók eru teknar til rannsóknar tvær mikilvægar fullyrðingar í Íslandssögunni. Önnur er sú að Ingólfur Arnarson hafi sest að í Kvosinni í Reykjavík og þar sé höfuðból hans að finna. Hin er sú að Flóki Vilgerðarson eigi höfundarréttinn að nafni Íslands. Niðurstaða bókarhöfundar er sú að hvorug þessara fullyrðinga standist gagnrýna skoðun.  

Fundurinn er í umsjón skemmtinefndar.

Matseðill jólafundar 5. desember 2022

 Forréttur: Fjórir smáréttir jóla

Aðalréttur: Kalkúnabringa

Eftirréttur: Ris ala mand og súkkulaðimús á borðið

Kaffi/te

Kr. 6.700 á mann

Jólarós